Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að hreyfa þessu máli. Hæstv. ráðherra hefur svarað fyrirspurninni. Ég les út úr svari ráðherra ótvírætt jákvæðar undirtektir við því að geyma megi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum fornminjar á minjasöfnum eða byggðasöfnum í landinu og ég tel það raunar vera sjálfsagt mál og í anda laganna sem kveða beinlínis á um að slíkt sé heimilt.
Í því tilviki sem er tilefni þessarar fyrirspurnar liggur það fyrir að aðstæður allar til vörslu á nýlega fundnum fornminjum eru ákjósanlegar í Minjasafni Austurlands á Egilsstöðum sem hefur verið svo lánsamt að fá einnig starfsmenn sem eru vel færir um að sinna þessu verki, auk minjavarðar, sem aðstoðar söfnin almennt á Austurlandi.