Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Það þarf nú náttúrlega ekki að deila um hver á frumburðarréttinn. Ég vakti athygli á því hver leiddi málefni fjölskyldunnar fyrst inn í þingsali 1980. Það var hv. þm. Haraldur Ólafsson og hv. þm. Alexander Stefánsson. Við þurfum ekki að deila um það.
Fjárlagafrv. er ekki árás á fjölskyldurnar í landinu. Fjárlagafrv. markast af því að verið er að reyna að koma ríkisfjármálunum í eðlilegt og sæmilegt horf. Það er undirstaða hagvaxtar og undirstaða þess að atvinnulífið í landinu gangi og fjölskyldurnar í landinu búi við batnandi hag.
Hvað varðar málefni fatlaðra er þeim vel sinnt í þessu frv. og til þess málaflokks er hækkun um 10% frá fjárlögum síðasta árs.