Opinber fjölskyldustefna

Fimmtudaginn 12. október 1995, kl. 11:31:49 (229)

1995-10-12 11:31:49# 120. lþ. 9.1 fundur 16. mál: #A opinber fjölskyldustefna# þál., BH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka]

Bryndís Hlöðversdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir vitnaði hér áðan í ónafngreindan ráðherra Alþýðubandalagsins því máli sínu til stuðnings að vinnubrögð hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur væru óeðlileg í þessu máli. Mér þykir það öllu óeðlilegra að vitna hér í ónafngreinda þingmenn máli sínu til stuðnings og ég held að það séu ekki mörg fordæmi fyrir slíkum málflutningi hér í þingsölum.