Hrafn Jökulsson fyrir LB

Mánudaginn 16. október 1995, kl. 15:40:21 (303)

1995-10-16 15:40:21# 120. lþ. 11.92 fundur 43#B varam#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem Lúðvík Bergvinsson, 6. þm. Suðurl., er erlendis í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm., Hrafn Jökulsson ritstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Rannveig Guðmundsdóttir

formaður þingfl. Alþfl.``

Kjörbréf Hrafns Jökulssonar hefur verið rannsakað og samþykkt. Hann hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.