Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Ég þarf ekki mörgu við að bæta annað en þakka hv. þm. fyrir svörin. Þetta voru fróðlegar upplýsingar og reyndar ekki að öllu leyti nýjar. Við höfum áður heyrt að gerðar hafa verið nokkrar tilraunir til að leysa þennan fjárhagsvanda. Ég hafði ekki tölu á þeim. Það er mjög gagnlegt að fá það fram að fimm sinnum hafði verið gert á það áhlaup að stokka upp fjármálin hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar en allar hafi þær tilraunir orðið árangurslausar. Þar á meðal hafi verið boðið upp á verslun um það að ef samgrn. eða ferðamálin og sú tekjumyndun sem vissulega er fyrir hendi og er umtalsverð innan geirans yrði nýtt til að standa straum af þessum skuldum fengi samgrn. forræði fyrir mannvirkinu í kaupbæti. En sá kaupbætir hefur greinilega ekki dugað. Væntanlega hefur tillögupakkinn verið eitthvað ókræsilegur að mati hæstv. samgrh.
Það er auðvitað líka skaði, herra forseti, að við skulum ekki hafa hæstv. samgrh. nálægt oss til að ræða þessi mál. Út af fyrir sig ætla ég ekki að gera kröfu til einhverrar umtalsverðrar efnislegrar umræðu um einstaka þætti hér en þegar á ferðinni eru hundruð millj. kr. lántökur til sérgreindra aðila er ekkert óeðlilegt við það að spurt sé um það við 1. umr. Ég tek þess vegna undir það og ítreka að ástæða er til þess að heyra hvað hæstv. fjmrh. hefur um þetta efni að segja og hver staða málsins er því að það er satt best að segja ekki boðlegt að leggja upp í nýtt kjörtímabil ef ekkert á að taka á þessum vanda. Við þekkjum nokkur svona dæmi sem hafa verið afvelta árum saman ef ekki áratugum saman öllum til skammar sem að því hafa komið. Annað frægt dæmi eru náttúrlega ónefnd skip sem smíðuð voru í röð og hverra lán hafa verið látin hlaðast upp og það er sennilega komið eitthvað á annan áratug. Það stefnir í áratuginn með Flugstöð Leifs Eiríkssonar sáluga þannig að við skulum fara að skoða þessi mál.