Jafnréttisáform

Miðvikudaginn 18. október 1995, kl. 14:43:47 (438)

1995-10-18 14:43:47# 120. lþ. 15.6 fundur 27. mál: #A jafnréttisáform# fsp. (til munnl.) frá fjmrh., GGuðbj
[prenta uppsett í dálka]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég fagna því að fjmrh. fann einhvern lið í fjárlagafrv. þar sem hann kemur inn á jafnréttismál, en það eru ekki miklir peningar og miklar aðgerðir sem eru fyrirsjáanlegar, verð ég að segja. Ein nefndin hér og þar og mig langar til að spyrja hann hvort hann geti hugsað sér á þessu stigi málsins að gera eitthvað raunhæft til þess að minnka launamun kynjanna, t.d. að verja til þess einhverjum fjármunum.