Fyrirspyrjandi (Kristín Ástgeirsdóttir):
Hæstv. forseti. Enn leita ég fanga í frv. til fjárlaga fyrir árið 1996 en við lestur 6. gr. vöknuðu hjá mér spurningar um kaup og sölu á ríkiseignum. Á hverju einasta ári er að finna í fjárlagafrv. langan lista yfir fasteignir, jarðir, sendiherrabústaði erlendis og ýmislegt sem ríkið leitar eftir heimildum til ýmist að selja eða kaupa en ég kannast ekki við það að við þingmenn fáum yfirlit yfir það hvað verður um þessar heimildir öðruvísi en kalla eftir þeim upplýsingum sérstaklega. Að vísu er gefin út fasteignaskrá ríkisins og hugsanlega er hægt að finna þetta út með samanburði en mig langaði til þess að fá örlitla innsýn inn í það hvað verður um þessar heimildir og þess vegna lagði ég fram þessar tvær fyrirspurnir á þskj. 34 og þskj. 35. Fyrst eru svohljóðandi spurningar um sölu ríkiseigna, með leyfi hæstv. forseta:
1.Hversu margar eignir ríkisins voru seldar á árinu 1994 og það sem af er árinu 1995:
a. húseignir,
b. jarðir og lóðir,
c. fyrirtæki eða hlutir í fyrirtækjum, og hvaða fyrirtæki áttu í hlut,
d. aðrar eignir?
2. Hversu miklu fé skilaði sala ríkiseigna árið 1994 og það sem af er árinu 1995?