Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 19. október 1995, kl. 19:14:01 (490)

1995-10-19 19:14:01# 120. lþ. 17.1 fundur 47#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), HG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka]

Hjörleifur Guttormsson (andsvar):

Virðulegur forseti. Það var einmitt það sem ég var að ræða um, breytingarnar í umheiminum, en hv. þm. virðist ekki hafa tekið mikið eftir þeim. Og ósvarað er minni spurningu: Hver er afstaða þingmannsins til þess að taka Rússland inn í Atlantshafsbandalagið ef formlegar óskir bærust þar um? Hver er afstaða þingmannsins?