[14:15]
Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):
Herra forseti. Mér þykir leitt að ég skuli hafa talað svo óskýrt að hugsun mín skuli ekki hafa komist til skila. En það sem ég ætlaði mér að segja var þetta: Að hér er verið að mæla fyrir rýmri reglum, meira frelsi. Það kostar hins vegar að menn þurfa að horfast í augu við að ýmis nöfn, sem menn ella hefðu ekki samþykkt sem íslensk nöfn, verður að viðurkenna ef samræmi á að vera í þeim reglum sem við höfum um þessi efni. Og það var aðeins sú ábending sem ég var að koma á framfæri eða ætlaði mér að koma á framfæri, að um leið og við rýmkum reglurnar, þá koma fleiri nöfn sem viðurkennd íslensk nöfn samkvæmt lögum og sum þeirra kunna að orka tvímælis eðlilega og vekja upp spurningar. En það er einmitt í þessu sem við getum ekki bæði sleppt og haldið.