Úrbætur í fangelsismálum

Miðvikudaginn 01. nóvember 1995, kl. 14:17:32 (578)

1995-11-01 14:17:32# 120. lþ. 23.4 fundur 52. mál: #A úrbætur í fangelsismálum# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., KÁ
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur


[14:17]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda fyrir spurningar hans. Mig langar til að skjóta einni spurningu að hæstv. dómsmrh.: Eru einhverjar hugmyndir uppi um nýtingu gamla fangahússins við Skólavörðustíg? Þetta er mjög merkilegt hús. Það var einu sinni notað undir fundarhöld bæjarstjórnarinnar í Reykjavík og ég reikna með að það heyri undir þau hús sem beri að varðveita. Mig langar til að spyrja hæstv. dómrmh.: Hefur hann einhverjar hugmyndir um hvernig ber að nýta þetta hús, sem undir hann heyrir?