Lokunartími veitingahúsa

Miðvikudaginn 01. nóvember 1995, kl. 14:33:14 (586)

1995-11-01 14:33:14# 120. lþ. 23.6 fundur 54. mál: #A lokunartími veitingahúsa# fsp. (til munnl.) frá dómsmrh., Fyrirspyrjandi ÓÖH
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur


[14:33]

Fyrirspyrjandi (Ólafur Örn Haraldsson):

Virðulegi forseti. Ég ber fram fsp. til hæstv. dómsmrh. um breyttan lokunartíma veitingahúsa. Fsp. er sem áður frá Arnþrúði Karlsdóttur sem sat hér á þingi og hljóðar svo, með leyfi forseta:

,,Hyggst ráðherra breyta lokunartíma veitingahúsa til að stemma stigu við ófremdarástandi í miðborg Reykjavíkur um helgar?``