Úthlutunarreglur Lánasjóðs ísl. námsmanna

Mánudaginn 06. nóvember 1995, kl. 15:32:09 (719)

1995-11-06 15:32:09# 120. lþ. 27.1 fundur 66#B úthlutunarreglur Lánasjóðs ísl. námsmanna# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur


[15:32]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Því miður hef ég ekki tök á því að svara neinu til um markmið laganna um húsaleigubætur. Ég hef ekki þá þekkingu að ég geti svarað hvernig staðið er að framkvæmd laganna um húsaleigubætur. Hins vegar varðandi framkvæmd laganna um Lánasjóð ísl. námsmanna sem eru á mínu verksviði vona ég að þær úthlutunarreglur sem þar hafa verið settar séu í samræmi við lögin og ég heyrði í sjálfu sér ekki að hv. þm. væri að gera athugasemdir við það en um framkvæmd húsaleigubótalaganna verð ég að vísa til hæstv. félmrh.