Óþörf fjárfesting í húsnæðiskerfinu

Mánudaginn 06. nóvember 1995, kl. 15:37:37 (724)

1995-11-06 15:37:37# 120. lþ. 27.1 fundur 67#B óþörf fjárfesting í húsnæðiskerfinu# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur


[15:37]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég tek fram að það er ekki eingöngu verktökum að kenna hve íbúðirnar hafa orðið dýrar. Þær kröfur sem settar voru upphaflega um gerð og frágang íbúðanna voru að mínu mati óskynsamlega strangar. Það er ekkert vit í því að ætla að fara fram á það við verktakana að þeir gróðursetji tré á lóðinni o.s.frv.