[14:56]
Árni M. Mathiesen:
Herra forseti. Fyrir nokkrum árum varð ég var við það vegna þess að leitað var aðstoðar minnar sem dýralæknis að hugmyndir voru uppi um breytingar á Bjargráðasjóði og að færa hluta af starfsemi Bjargráðasjóðs og þá væntanlega þess hluta búnaðardeildarinnar sem um ræðir til tryggingafélaganna á hinum almenna markaði. Leyfi ég mér að skilja það svo að með þessu frv. séu aflagðar allar slíkar hugmyndir.