[16:50]
Egill Jónsson:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja mikið þessa umræðu sem hefur verið að stærstum hluta málefnaleg. Hins vegar fagna ég því að þeirri umræðu sem tveir þingmenn Reykjaneskjördæmis hafa verið í forsvari fyrir. Það er sjálfsagt eitthvað líkt því sem gerist í þeirri almennu umræðu sem þessir þingmenn viðhafa um þessi mál. Ég endurtek það sem ég sagði áðan og virtist nú ekki koma nægjanlega vel til skila að Reyknesingar hafa haft feiknagóða þingmenn og fulltrúa í stjórn Byggðastofnunar. Ég fullyrði að það er ekki þeim að kenna þó að núv. þingmenn séu að tala fyrir því hér sérstaklega að hlutur Reyknesinga sé slæmur í þessum efnum enda fullyrði ég það að menn fara ekki fram með mál með þeim hætti. Ég vil hins vegar verða við þeirri ósk sem hér kom fram þó ég hafi raunar þegar að hluta til upplýst þau málefni sem hv. þm. Kristján Pálsson leitaði sérstaklega eftir að ég myndi skýra, hlutur Suðurnesja væri í þessum efnum. Mér hafa borist upplýsingar um að útistandandi eru þar 540 millj. kr. Það er líklega á milli 7% og 8% af því sem er útistandandi hjá Byggðastofnun. Lán á síðustu árum hafa verið frá 20--30 millj. Styrkveitingar tvö síðustu ár hafa verið árið 1993 7,5 millj. og árið 1994 3,9 millj. kr. Enda þótt ég telji mig reyndar ekki hafa haft neina sérstaka skyldu til þess að uppfræða hv. þm. um þessi efni vona ég að þetta sé fullnægjandi svar og ég tek það skýrt fram að ég mun ekki leggjast í neinar rannsóknir um það hvernig hlutur hvers og eins kjördæmis eða kjördæmishluta er í þessum efnum. Það finnst mér einfaldlega ekki vera sæmandi fyrir það starf sem ég gegni.
Ég undirstrika alveg sérstaklega í lokin að Byggðastofnun hefur ekkert að fela í þessum efnum. Nákvæmlega ekki nokkurn skapaðan hlut. Að minni tilhlutan fer nú fram stjórnsýsluúttekt á stofnuninni sem slíkri þar sem ég vænti að öll mál sem einhverju skipta verði fullkomlega leidd fram í dagsljósið.