Veiðileyfagjald

Föstudaginn 17. nóvember 1995, kl. 13:27:17 (1001)

1995-11-17 13:27:17# 120. lþ. 34.9 fundur 30. mál: #A veiðileyfagjald# þál., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 34. fundur


[13:27]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Hér erum við bara að tala um það, hæstv. sjútvrh., að opna umræðu um þetta mál og ég legg áherslu á það. Það getur vel verið að niðurstaðan verði sú að til að byrja með yrði gjaldið ekkert miklu hærra en það gjald sem útgerðin greiðir í dag og þá yrði alls enginn viðbótarkostnaður. Við skulum bara gera okkur grein fyrir því.

Mér finnst athyglisverðast í umræðunni að ekki megi taka málið á dagskrá. Með tillögunni er fyrst og fremst verið að biðja um að þessi mál verði athuguð og ég lýsi enn og aftur því yfir mér dettur ekki í hug að svara því hvort þessi eða hin útfærsla sé réttlát og ekki. Þessi mál verða að skoðast í heild.