[14:45]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Það er athyglisvert þegar hv. þm. flýr frá því máli sem ég spurði hann um varðandi Barnaspítala Hringsins. Ég hef kynnt mér allar fundargerðir af þessu tilefni og það kemur í ljós að málið var á sínum tíma tekið út úr ríkisstjórn með þeim hætti að okkur var falin afgreiðsla málsins. Það var ekki samþykkt öðruvísi í ríkisstjórninni. Ég hef fundargerðina hérna með mér. Ég get sýnt hv. þm. hana.
Það næsta sem gerist er að það kemur bréf frá heilbrrn. til fjmrn. þar sem beðið er um viðræður og að þetta mál verði tekið upp í nefndinni sem sér um opinberar framkvæmdir. Nefndin fær málið og á meðan málið er á vinnslustigi á milli ráðuneytanna skrifar heilbrrh. undir samning án þess að tala við fjmrn. Hann skrifar undir samning og hvernig átti nú að fjármagna þessa byggingu? Hringurinn átti að gera það og Reykjavíkurborg og einhvern tíma í framtíðinni átti svo heilbrrn. að gera það. (GÁS: Það var áætlun um það frá fjmrh.) Skömmu seinna lét hv. þm. af starfi sem ráðherra. Flokksbróðir hans tók við og það var ekkert aðhafst frekar í þessu máli. Og nú er svo komið að þegar hv. þm. snýr sér til ráðuneytisins og spyr um samninga sem í gildi séu, fær hann sendan pakka með ýmsum samningum. Þessi samningur er ekki í pakkanum vegna þess að ráðuneytið hefur lært af því að hafa ráðherra eins og hv. þm. Guðmund Árna Stefánsson sem er útbær á almannafé, sérstaklega ef hann og hans ráðuneyti þurfa ekki að koma nálægt því að borga það.