Reglur um endurnýjun og úreldingu fiskiskipa

Mánudaginn 20. nóvember 1995, kl. 15:21:06 (1095)

1995-11-20 15:21:06# 120. lþ. 35.1 fundur 83#B reglur um endurnýjun og úreldingu fiskiskipa# (óundirbúin fsp.), sjútvrh.
[prenta uppsett í dálka] 35. fundur


[15:21]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Ég ítreka að það er ekki ágreiningur milli okkar um að það þarf að eyða óvissu í þessu efni. En ég bendi á í þessu sambandi að það eru útvegsmennirnir sjálfir sem kusu að taka þetta mál upp með ályktun og ég neitaði að sjálfsögðu ekki að ræða við þá um þá ályktun. En það er alveg ljóst að málið kemur upp vegna þess að þeir kusu sjálfir að setja málið fram með þessum hætti.