Verslunarrekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Miðvikudaginn 22. nóvember 1995, kl. 15:04:21 (1198)

1995-11-22 15:04:21# 120. lþ. 39.12 fundur 166. mál: #A verslunarrekstur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar# þál., DSigf (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 39. fundur


[15:04]

Drífa Sigfúsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég get tekið undir með fyrri ræðumanni hvað lækkun á leigu og lagfæringar á annmörkum varðar. Eins og ég sagði, þá studdi ég fyrri hluta tillögunnar og mér finnst ekkert athugavert við það þótt fleiri komi að rekstrinum. Hins vegar sé ég enga ástæðu til þess að ríkið dragi sig út úr þessum rekstri, án þess að menn séu búnir að leggja það niður fyrir sig. Ég hef ekki séð að það hafi fylgt með þessari tillögu slíkar upplýsingar, sem auðvelda mönnum að ganga frá málinu.