[19:06]
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég held að þingmaðurinn hafi misskilið hvað ég átti við. Ég var ekki að tala um það að auka vægi atkvæða Vestfirðinga á Alþingi. Ég var að tala um að minnka vægi Alþingis og auka vægi vettvangs heima í héraði til að ráða málum.