Kaup og rekstur skólabáts

Þriðjudaginn 28. nóvember 1995, kl. 18:58:26 (1402)

1995-11-28 18:58:26# 120. lþ. 42.15 fundur 169. mál: #A kaup og rekstur skólabáts# þál., Flm. KPál
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur


[18:58]

Flm. (Kristján Pálsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um skipun nefndar til að kanna forsendur fyrir kaupum og rekstri skólabáts. Meðflutningsmenn mínir eru hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson, Árni Johnsen, Hjálmar Jónsson, Árni M. Mathiesen, Gísli S. Einarsson, Einar K. Guðfinnsson, Guðjón Guðmundsson, Lúðvík Bergvinsson og Magnús Stefánsson.

,,Alþingi ályktar að fela sjávarútvegsráðherra að skipa nefnd til að kanna forsendur fyrir kaupum og rekstri skólabáts sem nýttur verði til kennslu í sjómennsku í skólum landsins.

Nefndina skipi fulltrúar hagsmunaaðila og ráðuneyta og skili hún áliti eigi síðar en í apríl 1996.``

Það var árið 1985 sem keyptur var fyrsti skólabátur landsmanna og honum hleypt af stokkunum og gefið nafnið Mímir RE 3. Hann var smíðaður á Skagsatrönd og var 15 brúttólestir að stærð. Báturinn var í eigu ríkissjóðs og á rekstrarábyrgð sjútvrn. Ráðuneytið samdi við Fiskifélag Íslands um rekstur hans og sá Þorleifur Kr. Valdimarsson, starfsmaður hjá Fiskifélagi Íslands, um útgerðina.

Útgerð bátsins var strax mjög árangursrík og að mati þeirra sem séð hafa um sjóvinnukennslu í grunnskólum skipti tilkoma bátsins sköpum um áhuga á því námi. Fjögurra manna rekstursstjórn var skipuð við bátinn og voru ráðnir úrvalsmenn um borð. Fyrir utan það að nýtast sem skólabátur var Mímir notaður til rannsókna á vegum Hafrannsóknastofnunar og Líffræðistofnunar Háskóla Íslands. Fljótlega kom þó í ljós að ásókn í að fá bátinn til kennslu var svo mikil að henni varð ekki annað. Var þar um að ræða stýrimannadeildir víða um landið, svo og aðra skóla.

Í ársskýrslu Þorleifs Kr. Valdimarssonar til Fiskifélagsins árið 1990 kemur m.a. fram að fyrstu fimm árin hafi um 3.000 ungmenni á aldrinum 13--16 ára farið dagsferðir á sjó með bátnum. Meðalfjöldi nemenda í sjóvinnukennslu á árunum 1986--1992 var um 300 á ári. Þessu námi fylgdi það að fara á sjó með Mími og var það að allra mati toppurinn á náminu. Reynd voru margs konar veiðarfæri, m.a. lína, net, færi og gildrur. Vegna þess að báturinn var lítill voru honum takmörk sett um möguleika til veiða og var t.d. erfitt að koma við trolli. Sá hörmulegi atburður átti sér stað í október 1991 að Mímir fórst með allri áhöfn í Hornafjarðarósi og fórust þar mætir menn.

Þegar Mímis naut ekki lengur við í sjóvinnukennslunni dró verulega úr henni í grunnskólum landsins. Til marks um það hefur þeim grunnskólum sem bjóða upp á sjóvinnukennslu fækkað úr 27 árið 1992 í 18 á yfirstandandi skólaári. Þá hefur einnig verið tekið alveg fyrir dagsferðir með skólabörn sem reyndust mjög vinsælar eins og fyrr er getið. Nauðsynlegum þætti í uppfræðslu íslenskrar æsku um það á hverju þjóðin lifir var kippt frá henni og ekkert hefur komið í staðinn.

[19:00]

Eftir að Mímir fórst hafa einstaklingar reynt að sinna þessari þjóðfélagsskyldu og unnið þar markvisst starf. Má þar nefna rekstur Haftinds á vegum Karels Karelssonar.

Hugmyndir flutningsmanna þessarar tillögu eru í fyrsta lagi að keyptur verði stærri bátur en Mímir var og hann nýttur að mestu til kennslu en að mati útgerðarstjóra Mímis RE var aðsókn stýrimannadeildar og grunnskóla svo mikil í bátinn að ekki var hægt að anna henni vegna skylduverkefna í þágu vísindanna.

Í öðru lagi að báturinn verði í eigu ríkisins enda eðlilegt að ríkissjóður hafi frumkvæði og ábyrgð á því að kennsla fari fram í undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Einnig er erfitt að sjá að sveitarfélög geti átt slíkan bát þó svo þau gætu tekið þátt í rekstri hans ásamt hagsmunasamtökum við sjávrútveginn.

Í þriðja lagi að samvinna um kaup og rekstur bátsins verði við sveitarfélög í landinu, Fiskifélag Íslands, sjómannasamtökin, Landssamband ísl. útvegsmanna, Stýrimannaskóla, menntmrn. og fleiri hagsmunaaðila.

Í fjórða lagi að undirbúningsnefnd skili af sér eins fljótt og kostur er en þó ekki seinna en í apríl nk. svo að nægur tími verði til undirbúnings fyrir næsta skólaár og næstu fjárlög.

Það þótti sjálfsagt hér áður að ungir menn réðu sig í skiprúm upp á brot úr hlut til að læra sjómennsku. Þessi siður er af lagður og með aukinni eftirspurn eftir skiprúmi hefur ungum mönnum reynst erfitt að komast að sökum reynsluleysis. Áhugi á námi við Stýrimannaskólann hefur dregist verulega saman og er það áhyggjuefni fiskimannaþjóð sem okkur Íslendingum. Það er því nauðsynlegt að við endurmetum stöðuna. Það ætti að vera skylda að bjóða sjóvinnukennslu sem valgrein í hverjum grunnskóla. Það vekur athygli að í miklum útgerðarbæjum eins og Akureyri, Sauðárkróki, Siglufirði og Neskaupstað er ekki boðið upp á slíka kennslu.

Að mati hagsmunaaðila sem haft var samband við vegna þessarar þáltill., þ.e. Fiskifélags Íslands, Stýrimannaskólans, Landssambands ísl. útvegsmanna og sjómannasamtaka er rekstur skólabáts mjög mikilvæg forsenda þess að hægt verði að glæða áhuga fólks á sjómennsku og menntun sjómanna.

Herra forseti. Ég legg til að þessari þáltill. verði vísað til hv. sjútvn.