Málefni glasafrjóvgunardeildar

Miðvikudaginn 29. nóvember 1995, kl. 15:16:08 (1448)

1995-11-29 15:16:08# 120. lþ. 43.8 fundur 142. mál: #A málefni glasafrjóvgunardeildar# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur


[15:16]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég skil satt að segja ekki þetta uppþot. Það er rétt sem hv. 15. þm. Reykv., Össur Skarphéðinsson, sagði hér áðan að síðasta ríkisstjórn tók á þessum málum. Og eins og fram kom í máli hæstv. heilbrrh. þá verður því fylgt eftir sem síðasta ríkisstjórn gerði á næsta ári. Ég hygg þess vegna að það uppþot sem hér hefur orðið í þingsal sé að ástæðulausu.