[17:41]
Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Hv. form. heilbr.- og trn. velur þann kost þegar heilbrigðismál eru annars vegar að kveðja sér hljóðs utan dagskrár. Að öðru leyti talar hann lítið við ráðherra um þessi mál.
Eins og hv. formanni er kunnugt er gert ráð fyrir því í frv. til fjárlaga fyrir árið 1996 að innritunargjald verði tekið upp. Útfærslan er flókin og gjaldtakan getur ekki orðið án undantekninga. Tillaga er um að barnshafandi konur, börn og öryrkjar séu undanþegin þessu gjaldi og innritunargjald verði á bilinu 4.000 til 7.000 kr. Hver einstaklingur greiði aldrei oftar en einu sinni á ári. Einnig verði frá því gengið að sjúklingar geti greitt eftir á þannig að fjárskortur hamli aldrei sjúklingi að leggjast inn á sjúkrahús. Innritunargjöldin eru engin lausn á fjárhagsvanda heilbrigðiskerfisins í heild en það er mikið ósamræmi í allri gjaldtöku varðandi þjónustugjöld og hvað rekst á annars horn. Sem dæmi má nefna þegar sjúklingur kemur í dag í móttöku á sjúkrahúsi borgar hann fyrir rannsókn og röntgenmynd samtals 3.300 kr. Komi hann inn á slysadeild Borgarspítala borgar hann yfir 4.000 kr. Verði viðkomandi síðan lagður inn á sjúkrahús er honum endurgreitt. Hinir sem sendir eru heim sitja uppi með kostnaðinn. Sjúklingar sem nýta dýrustu þjónustuna, innlögn á sjúkrahús, greiða ekki neitt. Aðrir sem fá sína þjónustu, t.d. úti í bæ, borga allt að 20 þús. kr.
Mig langar aðeins að minna hv. formann heilbr.- og trn. á þau þjónustugjöld sem hafa verið sett á undanfarið sem ég vildi gjarnan standa fyrir að leggja niður. En við þurfum að afla tekna til þess að reka þessa þjónustu. Þá er spurningin hvernig við stöndum saman að því.
Hvar var hv. þm. Össur Skarphéðinsson þegar ferliverk voru tekin upp af Alþfl. 9. sept. 1992 og ósamræmið myndaðist milli hárrar gjaldtöku og engrar gjaldtöku? Hvar var hann þá? Kvaddi hann sér hljóðs þá? Hvar var hv. þm. þegar tannlæknakostnaður barna var hækkaður? Hvar var hv. þm. þá? Kvaddi hann sér hljóðs þá? Hvar var þm. hv. Össur Skarphéðinsson --- hann var í ríkisstjórn, ég minni á það --- þegar að sjúklingum var gert að greiða sýklalyf að fullu? Hvar var hv. þm. þá? Hann kvaddi sér ekki hljóðs þá. Hvar var hv. þm. Össur Skarphéðinsson þegar reglugerð um tannréttingar var breytt?
Ég hef sagt það og segi enn, hv. þm. má kalla það hvað sem hann vill, að ég er tilbúin að leggja á nefskatt til að geta lækkað þjónustugjöld. Ég er tilbúin til þess. Er hv. þm. tilbúinn til að standa með mér að því? (ÖS: Já, hann er það.) Það er gott að heyra. Hann var ekki tilbúinn til þess sem ráðherra í fyrrv. ríkisstjórn.
Það hefur ekki verið þjóðarsátt um þetta og um þetta þurfum við að fjalla. Það er eðlilegra að sá heilbrigði borgi heldur en sá sjúki. Ef menn ætla að halda áfram með þjónustugjöld þá verður að vera eitthvað samræmi í þeim gjöldum. Í dag er ekkert samræmi í þeim. Og ég vona að framtíðin verði sú að hv. form. heilbr.- og trn. sé tilbúinn til alvörusamvinnu um heilbrigðismál en standi ekki hér upp oft á dag, eins og hann gerði t.d. varðandi glasafrjóvgunarmálin, og harmi eitt og annað. En verkin hans í fyrri ríkisstjórn eru þannig að ég er ekki allt of bjartsýn á að hann meini mikið með þessu.