Framleiðsla og sala á búvörum

Miðvikudaginn 29. nóvember 1995, kl. 20:57:22 (1494)

1995-11-29 20:57:22# 120. lþ. 45.1 fundur 96. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (sauðfjárframleiðsla) frv., HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur


[20:57]

Hjálmar Jónsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir námskeiðið hjá hv. þm. Ágústi Einarssyni. Ég er alltaf að læra eitthvað af honum. Ég er sammála honum um að það er ástæða til að misfara ekki staðreyndir í prósentuleikjum. Það er ekki ástæða til að vera að búa til prósentur út frá prósentum eins og hv. þm. var að gera. Ég er með ljósrit úr OECD-skýrslunni og ég tók dæmi af árinu 1994. Það getur verið honum sýnilegt líka ef hann óskar þess.