Framleiðsla og sala á búvörum

Miðvikudaginn 29. nóvember 1995, kl. 23:54:25 (1516)

1995-11-29 23:54:25# 120. lþ. 45.1 fundur 96. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (sauðfjárframleiðsla) frv., ÁMM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur


[23:54]

Árni M. Mathiesen (andsvar):

Herra forseti. Það er orðið svolítið skondið þegar andsvör við ræðu minni eru aðallega farin að fjalla um flokksvist hv. þm. Marðar Árnasonar. En við það er að bæta sem kom fram hjá hv. þm. að ég tel mig hafa gert grein fyrir máli mínu af fullri hreinskilni og ekki dregið neitt undan og þar með rækt skyldur við kjósendur mína. Ég hef aldrei átt von á því að hv. þm. Mörður Árnason yrði einn af kjósendum mínum en þó út af fyrir sig miðað við það hvað flokksvist hans er heitt umræðuefni í þingsalnum er greinilega ekki öll nótt úti enn.