Framleiðsla og sala á búvörum

Fimmtudaginn 30. nóvember 1995, kl. 12:15:58 (1537)

1995-11-30 12:15:58# 120. lþ. 46.5 fundur 96. mál: #A framleiðsla og sala á búvörum# (sauðfjárframleiðsla) frv., LB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur


[12:15]

Lúðvík Bergvinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég vil aðeins ítreka það sem ég sagði áðan. Við megum ekki rugla saman efni og formum. Hvort það er formlega ákveðið í búvörulögum að greiðslur samkvæmt búvörusamningi séu verðtryggðar eða hvort þær eru ákveðnar í fjárlögum skiptir ekki máli. Praktísk þýðing þess er engin, niðurstaðan hin sama. Sá samningur sem hefur verið gerður við Bændasamtökin kveður á um vísitölubindingu beingreiðslna og það heldur.