Drífa Sigfúsdóttir fyrir SF, Kristjana Bergsdóttir fyrir HÁs

Mánudaginn 04. desember 1995, kl. 15:31:56 (1563)

1995-12-04 15:31:56# 120. lþ. 51.91 fundur 124#B x#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur


[15:31]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Reykjaneskjördæmi, Drífa Sigfúsdóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Siv Friðleifsdóttir, 4. þm. Reykn.``

Drífa Sigfúsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa á ný.

Þá hefur borist eftirfarandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að þar sem 1. varaþm. Framsfl. í Austurl. getur ekki vegna sérstakra anna tekið sæti sitt á Alþingi, taki 2. varaþm. flokksins í Austurlandskjördæmi, Kristjana Bergsdóttir kennari, sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl.``

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Vegna sérstakra anna sé ég mér ekki fært að taka sæti Halldórs Ásgrímssonar, 1. þm. Austurl., á næstunni sem 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi.

Virðingarfyllst,

Jónas Hallgrímsson.``

Kjörbréf Kristjönu Bergsdóttur hefur verið rannsakað og samþykkt, en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.