Félagsþjónusta sveitarfélaga

Þriðjudaginn 05. desember 1995, kl. 15:08:49 (1603)

1995-12-05 15:08:49# 120. lþ. 53.2 fundur 75. mál: #A félagsþjónusta sveitarfélaga# (fjárhagsaðstoð til sambúðarfólks) frv., dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 53. fundur


[15:08]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Vegna þeirrar fyrirspurnar sem hér hefur komið fram vil ég taka fram að það er á verkefnasviði sifjalaganefndar að fjalla um löggjöf á þessu sviði. Hún hefur ekki gert sérstakar tillögur um heildstæða löggjöf um þetta sambúðarform en það er rétt að koma þeim ábendingum til nefndarinnar sem hér hafa verið nefndar þannig að hún geti fjallað um þau rök sem þar eru fram færð og eftir atvikum gert tillögu um framgang málsins í því ljósi.