[11:16]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. stuðninginn við frv. Ég held að þetta sé misskilningur sem kemur fram í bréfi Mjólkursamsölunnar. Það er verið að vísa til arðsins en ekki til annarrar framleiðslu en mjólkurinnar í þessari greinargerð. En vegna þess að textann má misskilja þá tók ég það skýrt fram í minni ræðu sem reyndar kemur fram í bréfi Mjólkursamsölunnar til mín og hv. þm. hefur gert mér þann greiða að lesa hér.
Ég vil bæta því við að það eru auðvitað fleiri atriði sem mætti skoða og þegar vísað er til samkeppnisstöðu fyrirtækisins gagnvart öðrum drykkjarvöruframleiðendum þá er það alkunna að það er ekki lagt vörugjald á kókómjólk. Þetta er mál sem annað slagið hefur verið rætt og menn muna, a.m.k. menn sem hafa starfað í fjmrn. Það hefur stundum verið umkvörtunarefni drykkjarvöruiðnaðarins. Það er auðvitað ómögulegt að reikna út hvað fyrirtækið hefur lagt barnafjölskyldum til, þetta er einokunarfyrirtæki sem auðvitað þarf að laga sig að breyttum aðstæðum. Ég veit að forustumenn fyrirtækisins vilja það og hafa staðið sig mjög vel í þeim efnum. Málið er auðvitað viðkvæmt.
Ég sendi forstjóra fyrirtækisins frv. um leið og það hafði verið afgreitt úr ríkisstjórninni til þess að hann gæti séð frv. En það var ekki sent með minni vitund eða vilja til Viðskiptablaðsins, enda hafði ég sent forstjóranum frv. áður en ég sá það í Viðskiptablaðinu. Þetta vildi ég að kæmi fram. En aðalatriðið er auðvitað að við erum sammála um þessar lagabreytingar og ég vil nota tækifærið til að þakka hv. þm. fyrir stuðninginn við frv.