[11:34]
Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs í andsvari til að taka undir orð hv. 6. þm. Norðurl. e. Þegar komið er fram í desember dengjast mál yfir þingið og eins og kom fram hjá þingmanninum er þetta ekki nýtt. Þó finnst mér það hafa sjaldan verið svo slæmt sem núna og í gær var dreift á borð okkar frv. um Húsnæðisstofnun ríkisins. Þar er um að ræða aðgerðir nýrrar ríkisstjórnar í húsnæðismálum sem var eitt af stóru málum Framsfl. fyrir kosningar. Það kom á dagskrá með afbrigðum í morgun. Ég væri ekki undrandi á því að mjög marga þingmenn hefði fýst að taka þátt í umræðu um það mál. Það er mjög mikið að gera um þessar mundir og ekki öllum kleift að lesa frv. eldsnemma á fimmtudagsmorgni og fara ofan í það til þess að geta tekið efnislega þátt í umræðunni. Þetta eru afar vond vinnubrögð. Ég var samt staðráðin í því að tefja ekki fyrir þessu máli með því að gera athugasemd hér í upphafi fundar og studdi að það kæmist á dagskrá með afbrigðum en þetta eru ekki góð vinnubrögð. Alþingi er ekki sómi sýndur með því að slengja mikilvægum frv. á borð þingmanna og taka þau til umræðu snemma næsta morgun.