[15:22]
Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ráðherrann er upptekinn af því að 25 af 9.000 íbúðum hafi staðið auðar. Þetta er á tveimur stöðum á landinu. Ráðherrann nefnir ekki hvar eftirspurnin er og hefur ekki gefið upplýsingar um hvort það sé þannig að þær íbúðir sem farið var af stað með núna séu dreifðar um landið eða hvort að eftirspurnin sé sannarlega jafnmikil og áður á þéttbýlissvæðinu.