[16:54]
Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég vil aðeins út af orðum hv. 14. þm. Reykv., Kristínar Ástgeirsdóttur, ítreka mín sjónarmið í þessu álitaefni sem henni finnst vera hvort það sé ástæða til að byggja einstök sveitarfélög eða hvort það eigi væntanlega þá að leggja þau niður, ef þar eru innan sveitarfélagsmarkanna ákveðin hættusvæði. Ég held að við getum hreinlega ekki skoðað málið í þessu ljósi. Sveitarfélögin sem við erum að tala um eru ekki öll á hættusvæði heldur einstök svæði innan þeirra. Frv. miðar að því að gera fólki kleift að flytja sig til innan svæðanna, innan sveitarfélagsins. Og vilji fólk flytja úr sveitarfélaginu sökum þess að snjóflóðahætta er í einhverjum hluta sveitarfélagsins eða af öðrum orsökum, eigum við þá að taka tillit til allra annarra þátta sem geta haft áhrif á það að fólk vill flytja brott og þá væntanlega með þessum ákvæðum hér erum við að tala um að gera því það léttbærara fjárhagslega. En það sem er verið að tala um í þessu frv. er að gera fólk jafnsett. Annaðhvort vill það flytja sig til innan sveitarfélagsins eða í burtu og þá á þeim forsendum sem það annars mundi gera út af einhverjum öðrum þáttum. Þá verður að líta á fleiri þætti en hættu af snjóflóðum, ótryggt atvinnuástand og fleira.