Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Föstudaginn 08. desember 1995, kl. 16:04:45 (1755)

1995-12-08 16:04:45# 120. lþ. 58.4 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 58. fundur


[16:04]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Þessi ræða hæstv. dómsmrh. var dæmalaus og sú versta sem hann hefur flutt. Það er meira en að seilast um hurð til lokunnar þegar menn leyfa sér í svona umræðu að svara með dylgjum um það sem einhverjir kunni einhvers staðar að hafa sagt. Ég kannast ekki við þessi ummæli mín eða samráðherra minna úr síðustu ríkisstjórn. Ég kannast ekki við að Alþfl. hafi lagst gegn þessu. Það undirstrikar hversu brotgjarn sá stallur er sem hæstv. dómsmrh. stendur á í þessu máli að hann skuli leyfa sér að svara þeim sem mótmæla honum með dylgjum af þessu tagi.