Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Föstudaginn 08. desember 1995, kl. 18:07:57 (1786)

1995-12-08 18:07:57# 120. lþ. 58.4 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 58. fundur


[18:07]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nú þannig, hv. 18. þm. Reykv., að það eru líka til karlmenn sem ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum þannig að mér finnst erfitt að festa hönd á þessum rökum. Mér finnst eðlilegt að það sama gildi fyrir bæði kynin og ég endurtek: Við erum að lengja dánarbætur sem kemur báðum kynjum til góða.