[16:19]
Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég vil leggja áherslu á það við hv. þm. Össur Skarphéðinsson að Háskóli Íslands var neyddur til að setja á skráningargjöld í heimildarleysi vegna þess að fjárveitingar til skólans voru of litlar. Þess vegna finnst mér það jákvætt að ríkisstjórnin komi lagastoð undir það sem þegar er orðið. Það er fyrst og fremst það sem ég var að meina með að ég fagnaði því að háskólinn fengi lagastoð fyrir því sem hann er að gera. Það er óþolandi að háskólinn sé neyddur út í lögbrot.
En um jákvæð áhrif þessara skráningargjalda þá eru það fyrst og fremst þau eins og ég sagði áðan, og útskýrði held ég, að áður fyrr var þetta þannig að kannski voru 100 skráðir í námskeið eða fimm og síðan komu helmingi færri eða fleiri þannig að það var ekki hægt að skipuleggja kennslu. Með því að hafa skráningargjöld þá lagaðist þetta að vissu leyti. En að sjálfsögðu er ég á móti skólagjöldum. Besta lausnin á þessu máli hefði verið sú að það hefði komið lagastoð fyrir skráningargjöldum en þau hefðu verið mun lægri. Ég er að sjálfsögðu á móti skólagjöldum almennt og ég held að við hv. þm. Össur Skarphéðinsson séum algjörlega sammála um það. Ég vil hafa lág skráningargjöld en ekki skólagjöld. Þessi skráningargjöld eru fullhá, því þau vinna auðvitað gegn hinu mikilvæga markmiði um jafnrétti til náms.