[16:48]
Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Ég vil andmæla þessu frv. mjög harðlega. Ég vil taka undir með þeim hv. þm. sem hafa varað við skólagjöldum af þessu tagi. Hverju nafni sem menn kjósa að nefna þau, innritunargjöld eða skólagjöld, þá eru þetta fjármunir sem fólk þarf að reiða af hendi. Ekki finnst mér stórmannlegt að láta Háskóla Íslands fara fram á að þetta frv. verði gert að lögum til að fá lagastoð fyrir innheimtu á innritunargjöldum sem vitað er að háskólanum hefur verið þröngvað til að setja á. Hvort þetta er há eða lág upphæð, það er afstætt. 24.000 kr. fyrir sumt fólk eru ekki miklir peningar, e.t.v. eru það ekki miklir peningar fyrir hæstv. ráðherra sem nýbúinn er að fá mun drýgri kjarabætur en þessari upphæð nemur. En það eru ekki allir búnir að fá kauphækkun og fyrir láglaunafólk á Íslandi eru þetta talsverðir peningar. Atvinnurekendum hafa þótt 24.000 kr. talsverðir peningar þegar farið hefur verið fram á slíkt. Á það bæði við á einkamarkaði og einnig við um ríkið sem atvinnurekanda.
Hér lék allt á reiðiskjálfi fyrir fáeinum dögum þegar ákveðið var að reiða fram hækkun á desemberuppbót á almennum vinnumarkaði. Sú hækkun nam þriðjungnum af þessari upphæð. En ég leyfi mér að fullyrða að með þessu frv. er verið að smíða þröskuld inn í Háskóla Íslands. Þröskuld upp á 24.000 kr. Þetta er ávísun á misrétti til náms og þess vegna hafna ég því.