Fjárlög 1996

Fimmtudaginn 14. desember 1995, kl. 20:39:31 (1940)

1995-12-14 20:39:31# 120. lþ. 65.5 fundur 1. mál: #A fjárlög 1996# frv., Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 65. fundur


[20:39]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég sagði í ræðu minni áðan hefur fjárlaganefnd tekið þetta erindi til umfjöllunar. Það mun að sjálfsögðu verða borið saman við þau erindi Ríkisspítalanna og annarra sjúkrastofnana sem liggja fyrir nefndinni og að hve miklu leyti þetta mætir þeirri þjónustuþörf sem er á sjúkrahúsunum og þeim vanda sem þau erindi greina frá. Það fylgja þessu engar yfirlýsingar um frekari þjónustugjöld af hálfu heilbrrn. og fjárln. hefur ekki fengið slík erindi.