[13:38]
Margrét Frímannsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Í tillögunum sem liggja fyrir og hér var farið með, um ráðstafanir í heilbrigðismálum, kom ekkert fram um með hvaða hætti ætti að auka samstarf sjúkrahúsa á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi, ekki neitt. Ef setja á sameiginlega stjórn yfir þessar stofnanir, hvort sem þær eru hér eða á Reykjanesi, hlýtur að þurfa að breyta lögum. Við höfum ekki séð slíkt frv. hér, engar tillögur þar um. Það er ekki hlutverk stjórnarnefndarmanna Ríkisspítala að ákveða hverju sinni hvort lengja eigi biðlista þeirra sem bíða eftir kviðarholsaðgerð eða lagfæringu á axlarlið. Það er bara ekki þannig. Fjárhag Ríkisspítala er núna þannig háttað að ævinlega er verið að taka ákvarðanir um að stytta einn biðlistann með því að lengja annan. Meðan ekki er mörkuð stefna af hálfu stjórnvalda hvernig skuli staðið að rekstri þessa sjúkrahúss, hvert eigi að vera hlutverk Ríkisspítalanna, hvert þjónustustigið skuli vera sem spítalarnir veita, þá getur stjórnarnefnd ekki gert það upp á sitt eindæmi og hennar hlutverk er ekki að halda mánaðarlega fundi til að ákveða við hvaða líffæri skuli gert og hver ekki.