[16:04]
Einar K. Guðfinnsson:
Virðulegi forseti. Það er þannig þegar litið er yfir fjárveitingar til hafnamála til einstakra kjördæma yfir nokkurn tíma að þá er ljóst að þær sveiflast ævinlega mjög milli ára. Það ræðst af því hvort verið er að vinna stórverkefni í viðkomandi kjördæmi eða ekki. Þannig var það t.d. árið 1986 að fjárveitingar til Vestfjarða voru rétt rúmar 20 millj. en á næsta ári á eftir 85 millj. og 120 millj. röskar á árinu 1988, en lækkuðu síðan eftir það. Það er rétt að nú háttar svo að fjárveitingar eru hlutfallslega lágar til Vestfjarða og skýrist það af því sem ég hef þegar sagt.
Það er hins vegar ljóst miðað við þær áætlanir sem uppi eru hjá Hafnamálastofnun og liggja fyrir í hafnaáætlun að þetta mun breytast á næsta ári frá því sem er á þessu ári.