Vatnalög

Föstudaginn 15. desember 1995, kl. 19:18:56 (2045)

1995-12-15 19:18:56# 120. lþ. 67.3 fundur 234. mál: #A vatnalög# (holræsagjald) frv., GHall
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur


[19:18]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Ég mun að sjálfsögðu greiða þessu frv. atkvæði mitt en ég tel þó, með tilvísun til þess sem síðasti ræðumaður sagði, að það sé eðlilegt að sveitarfélögin hafi þetta alfarið í sinni hendi, að það sé ekki löggjafinn sem sé að setja sveitarstjórnum svo þröngar skorður. Því væri eðlilegt að texti frv. hljóðaði svo:

Heimilt er sveitarstjórnum að lækka eða fella niður holræsagjald.