Viðaukasamningur um álbræðslu við Straumsvík

Laugardaginn 16. desember 1995, kl. 11:10:05 (2050)

1995-12-16 11:10:05# 120. lþ. 68.1 fundur 171. mál: #A viðaukasamningur um álbræðslu við Straumsvík# frv., Frsm. meiri hluta StG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur


[11:10]

Frsm. meiri hluta iðnn. (Stefán Guðmundsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt sem hér kemur fram að það varð að hafa hraðan á við afgreiðslu málsins. Tímaskorður eru þannig að vinna varð mjög hratt í málinu. Ég hef margtekið það fram í máli mínu. Ég held þó að það sem skiptir mestu máli sé að allar upplýsingar og skjöl liggja fyrir, ég veit ekki annað, og að menn hafa fengið svör við öllum spurningum sínum. Ég hygg að það sé aðalatriðið.