Viðaukasamningur um álbræðslu við Straumsvík

Laugardaginn 16. desember 1995, kl. 12:51:55 (2058)

1995-12-16 12:51:55# 120. lþ. 68.1 fundur 171. mál: #A viðaukasamningur um álbræðslu við Straumsvík# frv., ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 68. fundur


[12:51]

Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):

Herra forseti. Ég vil að það komi aftur fram ef það var ekki ljóst að við höfðum þann skamma tíma sem iðnn. setti okkur. En við gátum svarað þessu með málefnalegum hætti vegna þeirrar ítarlegu umfjöllunar sem áður hafði farið fram eins og hérna hefur verið rakið. Þess vegna var þessi tími fullnægjandi fyrir okkur. Ég hefði gjarnan viljað bíða eftir umsögnunum sem um var beðið en það var ekki við formann eða meiri hluta nefndarinnar að sakast heldur hinn knappa tíma sem fyrirspyrjandi og beiðandi þessara umsagna hafði sjálfur til umráða.