[12:59]
Petrína Baldursdóttir:
Herra forseti. Ég kem í ræðustól á hinu háa Alþingi til að lýsa ánægju minni með að þetta stóra mál, er varðar stækkun álversins, virðist nú í höfn. Eins og kom fram í nefndaráliti meiri hluta iðnn. skrifar fulltrúi Alþfl. undir meirihlutaálit nefndarinnar.
Það var í ágúst 1994 undir forustu þáv. iðnrh., Sighvats Björgvinssonar, sem vinna hófst við undirbúning að stækkun kerskála við álverið. Það var vegna þessarar vinnu m.a. sem ég tel að þetta stóra mál sé sem næst í höfn. Núverandi hæstv. iðnrh. Finnur Ingólfsson hefur fylgt þessari vinnu vel eftir. Alþfl. hefur lagt mikla áherslu á iðnað og framkvæmdir við stóriðju þegar flokkurinn hefur haft áhrif á stefnumótun og fylgir því nú eftir þótt flokkurinn sé í stjórnarandstöðu. Við fylgjum málinu eftir af heilum hug og teljum að ávinningur framkvæmdanna skipti miklu máli fyrir íslenskt þjóðfélag. Það verður þjóðhagslegur ávinningur af viðaukasamningi ríkisstjórnarinnar og Alusuisse-Lonza þegar hann verður staðfestur.
Ég vil hins vegar taka undir tvennt sem kom fram í máli hv. þm. Svavars Gestssonar og hann gagnrýndi. Það er annars vegar það að ég tel það aldeilis óviðunandi sem kom fram hjá fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar á fundi með iðnn. þann 7. desember sl. Þar lýstu þeir óánægju sinni með vinnubrögð af hálfu álversins en þeim hafði borist bréf frá álverinu þar sem varað var við byggð á áður skipulögðu byggingarsvæði í Hafnarfirði. Síðan tekur iðnrn. undir bréf álversins. Ég tel ámælisvert hvernig forusta álversins kemur fram að þessu leyti við Hafnarfjarðrbæ. Menn voru varla búnir að skrifa undir samninga þegar þeim berst þessi viðvörun frá álverinu um byggð í nágrenni við það. Hafnarfjarðarbær hefur látið skipuleggja svæðið sunnan Hvaleyrarholts undir íbúðarbyggð. Það er vægast sagt mjög óþægilegt fyrir Hafnarfjarðarbæ varðandi fyrirhugaða markaðssetningu á skipulögðu svæði að fá svona rýtingsstungu í bakið. Hins vegar er nú verið af hálfu ráðuneytisins að vinna að lausn þessa leiðinlega máls hvað varðar samskipti Hafnarfjarðarbæjar og yfirmanna álversins. Það skiptir mjög miklu máli að samvinna og áreiðanleiki gildi á milli manna í samskiptum sem þessum.
Ég vil einnig taka undir áhyggjur þær er komu fram í máli hv. þm. Svavars Gestssonar varðandi öryggismál í álverinu. Hann vitnar reyndar í minnihlutaáliti sínu til þess er kom fram í máli Eyjólfs Sæmundssonar, forstjóra Vinnueftirlitsins, en Eyjólfur hafði á fundi iðnn. kvartað yfir því að þætti öryggismála væri ábótavant í álverinu. Þegar iðnn. var í heimsókn í álverinu þann 7. desember sl. var fulltrúi álversins, Rannveig Rist, spurð m.a. hvort tíðni vinnuslysa væri mikil. Jú, hún viðurkenndi að vinnuslys væru of mörg innan álversins þótt þeim hefði eitthvað farið fækkandi á sl. árum. Hún sá samt ekki ástæðu til að minnast á vinnuslys sem hafði orðið þarna tveimur klukkutímum áður en hún var spurð. En í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins þennan sama dag og hv. alþm. voru að stíga inn í Alþingishúsið eftir að hafa verið í álverinu kom fram að þrír menn höfðu slasast alvarlega í vinnuslysi þarna um morguninn. Ég verð að segja alveg eins og er að mér þótti þetta sérkennilegt. Fulltrúi álversins var þarna spurð um tíðni vinnuslysa en sá samt ekki ástæðu til að segja hv. alþm. frá því að um morguninn hefði einmitt orðið alvarlegt vinnuslys. Rannveig Rist tók að vísu fram að unnið væri hörðum höndum innan fyrirtækisins við að uppræta vinnuslys og sagði að eitt slys væri einu of mikið og undir það skal tekið. En það má því taka undir með þeim er lýsa yfir áhyggjum sínum með öryggismál innan álversins og það er alveg ljóst að þar verður að bæta úr.
Herra forseti. Ég vil að síðustu lýsa ánægju minni með þennan samning sem hér um ræðir og ítreka það að við alþýðuflokksmenn erum mjög ánægðir með að málið skuli vera svo sem næst í höfn og teljum samninginn vera stórkostlegan ávinning fyrir þjóðarbúið. Það er það sem skiptir máli í öllu þessu.