[15:23]
Iðnaðarráðherra (Finnur Ingólfsson) (um atkvæðagreiðslu):
Herra forseti. Á þskj. 382 er brtt. við frv. sem er flutt af minni hluta iðnn., hv. þm. Svavari Gestssyni. Tillaga þessi er í þremur liðum og gæti hver liður tillögunnar í raun verið sjálfstæð samþykkt Alþingis. Því geri ég eftirfarandi athugasemdir varðandi a-lið tillögunnar: Starfsleyfi hefur verið gefið út fyrir Ísal af þar til bærum yfirvöldum, af umhvrh. samkvæmt lögum og reglugerðum. Samningurinn við Alusuisse-Lonza var undirritaður af hálfu íslenskra stjórnvalda, m.a. með tilliti til þessa starfsleyfis. Væru gerðar breytingar fyrr en samningurinn sem undirritaður hefur verið gerir ráð fyrir eins og þessi tillaga felur í sér, væru það samningsrof.
Varðandi b-lið tillögunnar er gert ráð fyrir að Alþingi kjósi sjö manna atvinnumálanefnd sem geri tillögur um alhliða eflingu atvinnulífsins. Svo er að nú eru í gangi á vegum ríkisstjórnarinnar verkefni á mörgum sviðum sem gera ráð fyrir því að atvinnulífið verði eflt. Þar vil ég minna á, eins og ég gerði við 2. umr. málsins, verkefni um lítil og meðalstór fyrirtæki, fjárfestingarskrifstofu iðnrn. og viðskrh. og markaðsskrifstofu iðnrn. og Landsvirkjunar. Þær verða notaðar í þeim tilgangi að efla atvinnulíf, ekki síst á landsbyggðinni. Þar eru nokkur verkefni núna í undirbúningi. Í þriðja lagi er í vændum sérstakt samstarfsverkefni Iðnlánasjóðs, Iðnþróunarsjóðs, Iðntæknistofnunar og iðnrn. sem gengur undir vinnuheitinu Átak til atvinnusköpunar og mun því verða komið af stað upp úr áramótum. Allt miðar þetta að því að reyna að efla atvinnulífið og leggja sérstaka áherslu á þau svæði sem núna standa höllum fæti og varla fyrirsjáanlegt að þær stóru framkvæmdir sem um er talað í tillögunni lendi einmitt þar. Að þessu leyti til tel ég að þessi tillaga sé óþörf.
Í c-lið tillögunnar er gert ráð fyrir því að Alþingi kjósi sérstaka sjö manna nefnd til stefnumörkunar í orkufrekum iðnaði og stóriðju á grundvelli sjálfbærrar þróunar. Skýrsla um þetta efni, sem allir stjórnmálaflokkar komu að, kom út í upphafi þessa árs. Þar er nákvæmlega tekist á við þessi verkefni og bendi ég hv. þm. á hana. Í öðru lagi er verið að skipa sérstaka nefnd þar sem óskað er eftir tillögum frá öllum stjórnmálaflokkum og öllum hagsmunaaðilum varðandi endurskipulagningu á orkukerfi landsmanna.
Í þriðja lagi hefur verið á vegum iðnrn. og markaðsskrifstofu iðnrn. og Landsvirkjunar sérstök nefnd til að stilla upp þeim virkjunarkostum sem hugsanlega væru fram undan miðað við tiltekna iðjukosti. Þessi nefnd mun á næstu dögum skila áliti og þess vegna segi ég: Það er verið að vinna að öllum þeim þáttum sem þarna er um getið og því legg ég til að þessari tillögu verði hafnað í atkvæðagreiðslu.