Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum

Mánudaginn 18. desember 1995, kl. 17:18:04 (2139)

1995-12-18 17:18:04# 120. lþ. 70.1 fundur 221. mál: #A varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum# (yfirstjórn, rýmingarsvæði, ofanflóðasjóður o.fl.) frv., Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 70. fundur


[17:18]

Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):

Virðulegi forseti. Aðeins örstutt. Ég vil nota tækifærið til að þakka hv. þm. fyrir þessar umræður og ábendingar sem komið hafa fram. Ég vil einnig ítreka að umsagnir hv. þingnefnda, bæði félmn. og umhvn., voru ræddar vandlega í allshn. Þessi atriði munu að sjálfsögðu verða vandlega skoðuð í nefnd sem starfar að heildarendurskoðun laganna og mótar framtíðarstefnu í þessum málum.