[14:18]
Jón Baldvin Hannibalsson:
Virðulegi forseti. Ég vildi mega byrja þessa umræðu á að rifja upp ummæli forseta vors frá því fyrr í haust um að hann óskaði að sjálfsögðu eftir góðu samstarfi við þingheim sem við teljum að hann hafi efnt í alla staði, enda samstarf gott. En þá hafði hann sérstaklega á orði að það væri nauðsynlegt að reyna að sjá til þess í ljósi reynslu að hefðbundið öngþveiti skapaðist ekki á Alþingi og það væri helst að reyna að ráða við það með því að tryggja að stór mál kæmu tímanlega fram og þeim væri gefinn sómasamlegur tími til umfjöllunar og unnt væri að fjalla um þau í samræmi við þinglegar venjur og hefðir.
Nú er það svo, virðulegi forseti, að þau mál sem þingheimur er nú við að glíma eru hvert öðru stærra, að sjálfsögðu fjárlög og lánsfjárlög en ekki síst geysilega viðamikill bálkur um ríkisfjármál sem er einstæður að því leyti að hann tekur til gríðarlega margra málefnasviða í löggjöfinni. Enn fremur vill svo til að það er verið að hringla með og leggja fram breytingartillögur á seinustu stundu í hverju málinu á fætur öðru sem bendir til þess að stjórnarliðar hafi ekki lokið heimavinnu sinni. Þeir eru að koma með nýjar tillögur sem jafnvel fást ekki kynntar eða ræddar í þingnefndum sem um þær eiga að fjalla. Þannig að ef hægt er að lýsa með réttum rökum að það ríki uppnám í störfum þingsins vegna þess að stjórnarliðar hafi ekki lokið sinni heimavinnu, hafi ekki náð samkomulagi um hvert stórmálið á fætur öðru, þá held ég að það sé óhætt að lýsa því svo nú.
Við erum með dagskrá þingsins og á því standa tvö mál, tekjuskattur og eignarskattur og síðan viðaukasamningur um álbræðslu. Af þessu tilefni vil ég leyfa mér að beina þeim spurningum til forseta: Getur hann upplýst þingheim nú hvernig hann hyggst halda fram þingstörfum, hvernig dagskrá þingsins verður það sem eftir er þessa dags og næstu daga eða hvaða ráðstafanir unnt er að gera til þess að tryggja að réttur þingnefnda til þess að fjalla um veigamiklar breytingartillögur á þeirra málasviði verði virtur og að tími gefist til að leita umsagna og samtala við þá aðila sem eru þolendur þessara mála? Þetta lýtur allt að spurningunni um skipulag þingstarfa og samstarf stjórnarliða og stjórnarandstöðu ef menn vilja setja sér eitthvert sameiginlegt markmið um lúkningu mála.
Ég vildi leyfa mér, virðulegi forseti, að beina þessum spurningum til forseta.