[14:34]
Kristín Ástgeirsdóttir:
Hæstv. forseti. Á þeim tíma sem ég hef verið hér man ég sannast að segja ekki eftir öðru eins og því sem við erum nú að upplifa. Þó hefur ýmislegt gerst á undanförnum árum. Í gærkvöldi var fundur í efh.- og viðskn. Þar voru kynntar nýjar tillögur í skattamálum, nýjar tillögur til breytinga á bandorminum langa og einnig var kynntur nýr bandormur, nýtt frv. sem enn er ekki komið inn í þingsali. Hæstv. forseti er að vonast til að þessi bandormur og afkvæmi hans komi til umræðu í kvöld. Að mínum dómi er svo mikil umræða eftir um þetta mál, sem kallað er ráðstafanir í ríkisfjármálum, að vandséð er að takist að ljúka því fyrir jól. Það er ekki síst vegna þess, hæstv. forseti, að í bandorminum er að finna margfalda árás á gamla fólkið og maður hlýtur að spyrja: Hvað er eiginlega að gerast í ríkisstjórninni? Finnst hæstv. ráðherrum virkilega að gamla fólkið séu þeir einu sem hafi breið bök og geti tekið á sig allar þessar hækkanir og þær skerðingar sem á því dynja? Ætlar meiri hlutinn að láta þetta yfir sig ganga? Þetta kallar á mjög mikla umræðu. Það er augljóst að mikil viðbrögð eiga eftir að verða í samfélaginu vegna þessara breytinga.
Enn eitt málið er í uppsiglingu. Háskóli Íslands er nú búinn að átta sig á niðurstöðunni eftir 2. umr. fjárlaga og er fara af stað í baráttu. Menn skulu gera sér grein fyrir því að það er mjög mikið eftir í þingstörfum. Ég tek undir að eina vitið væri að gera hlé og menn reyni að ljúka vinnu við frágang mála. Meiri hlutinn á að koma sér saman um hvað hann eiginlega ætlar að gera. Við verðum einfaldlega að bíta í það súra epli að mæta á milli jóla og nýárs. Ekki stendur á mér. En það er mikil umræða eftir.