Ráðstafanir í ríkisfjármálum

Miðvikudaginn 20. desember 1995, kl. 14:46:20 (2222)

1995-12-20 14:46:20# 120. lþ. 73.3 fundur 225. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum# (breyting ýmissa laga) frv., Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur


[14:46]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Forseti tekur undir það að hæstv. ráðherrum ber að vera við umræðuna og auðvitað eru stólarnir hér ætlaðir þeim sem til hliðar eru við forsetastól. Forseti hefur gert ráðstafanir til þess að þeir ráðherrar sem óskað er eftir komi hér fyrst til umræðunnar. Eins og forseti upplýsti er hæstv. samgrh. með fjarvistarleyfi í dag en það er verið að gera öðrum hæstv. ráðherrum viðvart um óskir þingmanna. Ég býst því við því að þeir verði hér innan stundar.