Húsnæðisstofnun ríkisins

Fimmtudaginn 21. desember 1995, kl. 09:39:51 (2273)

1995-12-21 09:39:51# 120. lþ. 74.2 fundur 215. mál: #A húsnæðisstofnun ríkisins# (lánstími húsbréfa o.fl.) frv., ÖS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 74. fundur


[09:39]

Össur Skarphéðinsson:

Herra forseti. Með þessari grein er verið að taka af öll tvímæli um að sú stefna sem Alþfl. hefur haft í þessu máli reyndist rétt vera vegna þess að fyrir tilstilli hæstv. félmrh. er nú verið að lögfesta þá stefnu. Því segi ég já við þessari grein.