[13:42]
Ágúst Einarsson:
Herra forseti. Ég á sæti í hv. efh.- og viðskn. Varðandi þetta mál vil ég segja að það var gert samkomulag um bandorminn svokallaðan. Það kemur oft fyrir í lokaafgreiðslu mála að einhver mistök hafa orðið. Formaður nefndar kemur þá við lokaumræðu til að bæta úr mistökum sem hafa átt sér stað við umfjöllun í nefndinni. Það er ekki svo í þessu tilviki. Ég minnist ekki umræðna í hv. efh.- og viðskn. um það að með þessum lagabálki, 47.--50. gr. stæði til að skipta út öllum forsvarsmönnum spítala í landinu. Ég minnist þess ekki þannig að það er efnisbreyting sem hér kemur fram. Ég mælist til þess við hæstv. forseta að fara að tillögu hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar að láta ekki fara fram atkvæðagreiðslu um afbrigði við málið að svo komnu, þannig að hægt verði að að skoða það hér aðeins áður en menn fara að takast á í þeirri atkvæðagreiðslu.